Forsíða Fréttir Vefþjónar í skýjunum
Vefþjónar í skýjunum

Dæmigerðir rekkar í gagnaveriVið höfum um árabil í viðbót við almenna vefhýsingu fyrir einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir sett upp einka net- og vef-þjóna fyrir viðskiptavini. Sumum hentar ekki að vera á almennu vefþjónunum af ýmsum ástæðum, þeir vilja hafa rótaraðgang og frelsi til að þróa án takmarkanna. Einnig getur aðsókn á vef verið svo mikil að það hentar ekki að hafa vefinn á deildum vefþjónum. Verð á einkavélum eru frá $40 (kr. 2600)/mán. og upp úr (okkar umsjón og uppsetning legst ofan á verðið). Þeir geta verið á Íslandi, Þýskalandi, Englandi, Bandaríkjunum (BNA) ofl. stöðum reyndar. Þetta eru þeir staðir þar sem við erum nú þegar með vefþjóna og hugbúnaðarveitur.

Í flestum tilfellum er um að ræða svokallaðar sýndarvélar (virtual computers). Það hefur reynst vænlegasta leiðin til að ná hagkvæmni en halda jafnframt háu öryggisstigi. Stundum er þó þörf á hráum vélbúnaði og getum við veitt þá þjónustu í BNA og Þýskalandi.

Þessa dagana er vinsælt að tala um Cloud Computing eða tölvur í skýjunum ef við snörum þessu yfir á ylhýra. Það er ekki að ástæðu lausu að þessi tegund sýndarvéla er vinsæl, loforðið um uppitíma og öryggi er freistandi. Við höfum slíkar vélar á boðstólum í London og BNA. Það fylgir sýnarvélunum mikill sveigjanleiki í því að hægt er að stækka og minnka vélarnar á nokkrum mínútum, jafnvel eftir að þær eru komnar í fulla notkun.

Stýrikerfin geta verið margvísleg en þau tvö vinsælustu á internetinu byggja á Debian og Red Hat. CentOS er t.d. byggt á Red Hat og er líklega vinsælasta einstaka stýrikerfið fyrir vefþjóna. CentOS hefur líka reynst afar stöðugt og öruggt. Ubuntu er byggt á Debian en við höfum valið það aðallega fyrir Hugbúnaðarveituna.

Hugbúnaðarveitan er leiðin að því að hafa skrifstofuna sem næst því að vera rafræna og algjörlega óháða staðsetningu. Skrifstofan verður sem sagt þar sem starfmenn eru hverju sinni svo fremi þeir hafa aðgang að tölvu (eða einum af þessum nýju símum). Þetta er verkefni í þróun og bjóðum við þeim sem vilja að hafa samband og kynna sér málið betur.