Forsíða Vörur og verð
Vefhýsing - Silfur (5GB)
Verð: kr. 3.906 (kr. 3.150 án vsk.) per mánuð
Silfrið hentar best fyrir þá sem þurfa mikið pláss fyrir einn vef eða eru með marga litla vefi undir sinni stjórn. Bæta má við Silfur plús (4GB) fari plássleysi að segja til sín.

Allir kostir grunnhýsingarinnar er hér til staðar (sjá í lýsingu grunnhýsingar) en án takmarka á fjölda netfanga, undirléna eða annars. Einu takmörkin eru plássið en hægt er að koma fyrir töluverðu af forritum og gögnum í 4GB. Bandvíddin er 60GB en ef vefurinn verður svo vinsæll að ná þar upp eru menn í góðum málum vinsældarlega séð. Fram að þessu eru hæstu tölur vinsælustu heimasíðnanna  um 3% af þessu.

Eins og í grunnhýsingunni geta menn  boðið upp á ftp þjónustu frá vefsvæðinu, framsendingu netfanga, mörg netföng send á eitt og einnig eitt netfang sent á marga og svo póstlistana (Mailman).

Lénsherrann hefur mikla stjórn á vefsvæðinu í gegn um cpanel stjórnborðið og getur stofnað ný lén og undirlén. Lénin geta vísað á sér vefi (Add On) eða mörg vísað á sama vefinn (Parked). Með File Manager (í cpanel) má sækja skrár, flytja til og opna zip pakkaðar skrár. Einnig er hægt með File Manager að breyta skrám beint á vefsvæðinu. Vissulega er einnig hægt að sækja og senda skrár til og frá vefsvæðinu með ftp og í cpanel er hægt að stofna ftp notendur að vild, hvern með sýnar aðgangsheimildir.

Notendur þjónustunnar hafa hrósað mjög þeim sveigjanleika og stjórn sem þeir hafa.

Í gagnamiðstöðinni þar sem vefþjónarnir eru vistaðir er tekið daglegt afrit af öllum gögnum en vefþjónarnir eru með speglaða geymslumiðla sem minnkar verulega líkurnar á að grípa þurfi nokkurtíman  til afritsins. Gagnamiðstöðvarnar eru með mikla öryggisgæslu og eldvarnir. Uppitími netsins er næstumþví gulltryggt í 100% (ath. ekki sama og uppitími vefþjóns). Við höfum vefþjónana okkar 100% fyrir okkar viðskiptavini sem gerir okkur óháða vefkeyrslum annarra.

Setja í körfu   Aftur í vörulista


Vörur sem fara vel með() Vefhýsing - Silfur (5GB):
  Vöruheiti
Verð
Eining
  Nánari skýringar
Joomla - aðlögun skapalóns
(sjá nánar)
Setja í körfu
kr. 39.740
32.048 án vsk.
per uppsetningu Í aðlögun skapalóns (template) felst að merki (lógó) félags er sett upp með völdu skapalóni. Aðal valmynd er íslenskuð og aðlöguð til að samræma liti og letur og áferð almennt aðlöguð að áferð merkisins. Grafísk vinna við merkið er ekki innifalin og reikn
Joomla grunnur - vefumsjónarkerfi
(sjá nánar)
Setja í körfu
kr. 9.920
8.000 án vsk.
per uppsetningu Grunn uppsetning á hinum vinsælu og margverðlaunuðu Joomla og Mambo vefumsjónarkerfum og íslenskun á nokkrum textum sem snúa að gestum vefsins. Eigandi vefsins getur tekið við aðlögun hér eða tekið næsta skref sem er aðlögun skapalóns (template).
Joomla þjónustusamningur
(sjá nánar)
Setja í körfu
kr. 18.476
14.900 án vsk.
á ári Viðhaldssamningur fyrir þá sem hafa Joomla og/eða Mambo vefumsjónarkerfi á vefnum sínum. Kerfið er uppfært þegar gefnar eru út öryggisuppfærslur og endurbætur.
Rafrænt skírteini 1 (SSL)
(sjá nánar)
Setja í körfu
kr. 26.040
21.000 án vsk.
fyrsta ár Rafrænt skírteini (verð miðast við eins árs gildistíma). Rafræn skírteini auðkenna vefsíðuna þína og gefa kost á dulkóðun samskipta við gesti vefsíðunnar. Þetta er oftast notað við móttöku á greiðslukortum og slíku.
Silfur plús 4GB
(sjá nánar)
Setja í körfu
kr. 2.480
2.000 án vsk.
per mánuð Þeir sem eru með Silfur hýsingu og þurfa meira pláss fyrir gögn geta með þessum pakka bætt við 4GB. Með nýja vefdiskinum er þetta tilvalið fyrir afrit af mikilvægum gögnum.