GREIÐSLUSKILMÁLAR Staðfesting Til að staðfesta pöntun á vefhýsingu skal greiða því sem nemur einum mánuði eða meira inn á ofangreindan bankareikning. Viðskiptavinir fá sendan reikning um hæl fyrir hýsingargjöldum sem nema því sem eftir er af yfirstandandi hýsingartímabili eða reikningur berst með eftirstöðvum hýsingartímabils auk næsta tímabils. Greiða þarf þann reikning innan þess mánaðar sem hann er dagsettur.
Greiðslutímabil Viðskiptavinir sem greiða beint inn á bankareikning fá reikning á þriggja mánaða fresti og greiða fyrir 3 mánuði í senn. Tímabilin eru 1. janúar - mars, 2. apríl - júní, 3. júlí - september og 4. október - desember. Vefhýsingin skal ávallt greiðast fyrirfram fyrir hvert tímabil. Hafi greiðsla ekki borist fyrir 10. dag hýsingartímabils getur eigandi vefsins reiknað með lokun hans án frekari fyrirvara. Berist pöntun á höfnu tímabili greiðir viðskiptavinurinn staðfestingu eins og að ofan greinir og síðan eftirstöðvar fyrir hafið tímabil þegar reikningur berst, ef einhverjar eru.
Boðgreiðslur Viðskiptavinir sem greiða með boðgreiðslum Visa eða Euro eru skuldfærðir mánaðarlega. Gefnir eru út reikningar á þriggja mánaða, sex eða tólf mánaða tímabil eftir tilefni og/eða óskum korthafa. Ef viðskiptavinurinn afpantar hýsingu eru eftirstöðvar ársins kreditfærðar og boðgreiðslur stöðvaðar.
Vinsamlegast ath. að vanskil eru send Premium Kredit til innheimtu.
Nánar um skilmála hýsingar
|