Forsíða
vefhýsing | heimasíður | hýsing | lén :: EÐALNET
Hýsum heimilin Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Íkon ehf - edal.net hefur tekið að sér vefhýsingu www.heimilin.is, undirskriftasöfnun ætluð til verndar heimilum landsmanna í ólgusjó fjármagnskreppunnar.  Við hvetjum viðskiptavini okkar til að líta við á vefsíðunni og íhuga stuðning.

 
Stofngjald .is léna fellt niður Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Frá og með 1. des. 2008 var stofngjald .is léna hjá Isnic fellt niður. Eftir sem áður þarf að greiða árgjaldið sem er kr. 7.918 m. vsk. Það þarf ekki að fjölyrða um að þetta er mikilvægt fyrir alla sem hafa hagsmuna að gæta og styrkir samkeppnisstöðu .is léna á markaði.

 
Nýjungar í stjórnborðinu (cPanel) Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Frá og með 19. sept. hefur stjórnborðið nýtt útlit og nokkrar afgerandi breytingar og viðbætur.

Á meðal nýjunga:

  • Vefdiskur: Notendur geta nú stofnað sérstaka möppu á heimasvæðinu sem er aðgengileg beint af skjáborði tölvunnar. Nota má draga og sleppa (drag and drop) til að færa skjöl á milli eða eyða þeim. Halað er niður litlu forriti sem bætir þessum kosti við stýrikerfi einkatölvunnar. Virkar fyrir Windows, Macintosh og Linux stýrikerfi. Frábær leið til að eiga öruggt afrit af fjölskyldumyndunum og/eða öðrum mikilvægum gögnum. Velja má um hvort gögnin séu aðgengileg öllum með vafra á veraldarvefnum eða aðeins aðgengileg með aðgangslykli.
  • Video kennsla: Notendur hafa nú aðgang að hreyfimyndum sem sýna hvernig á að framkvæma tilteknar aðgerðir innan stjórnborðsins.
  • Round Cube: Notendur vefpósts hafa nú um nokkurt skeyð haft aðgang að nýju vefviðmóti fyrir tölvupóstinn. Round Cube er mjög hreint og einfallt viðmót en jafnframt hraðvirkt. Eins og í Squirrel Mail má stilla viðmótið á íslensku og reyndar fjölda annarra tungumála.
  • Nýr File Manager: Skráaumsýsla hefur verið stórbætt með nýju tóli. Við höfum áfram aðgang að gamla tólinu en það nýja er bara mun betra, gefur betri yfirsýn, er hraðvirkara og skartar draga sleppa (á milli mappa) ásamt fleiri kostum sem við leyfum notendum að uppgötva sjálfum.
  • Gert klárt (Getting Started): Notendur hafa nú aðgang að byrjendakynningu á vefhýsingunni.
Nánar...
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 Næsta > Síðasta >>

Síða 4 af 4